AVS
AVS - rannsóknasjóður í sjávarútvegi
AVS er rannsóknasjóður í sjávarútvegi sem starfar á vegum sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins.
AVS rannsóknasjóður veitir styrki til rannsóknaverkefna, sem auka verðmæti sjávarfangs. Styrkir eru veittir til verkefna sem taka á öllum þáttum sjávarútvegs og fiskeldis.
Styrkir AVS rannsóknasjóðs eru til hagnýtra rannsókna og ætlaðir einstaklingum, fyrirtækjum, rannsókna-, þróunar- og háskólastofnunum.
Stjórn sjóðsins forgangsraðar tillögum til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um styrki til rannsókna í þágu verkefna sem auka verðmæti sjávarfangs og styrkja samkeppnishæfni sjávarútvegsins.
