Sögulegt yfirlit
Sögulegt yfirlit sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis
Þann 13. júní 2007 samþykkti Alþingi breytingar á lögum nr. 73/1969 um Stjórnarráð Íslands og voru þau staðfest af forseta Íslands 25. júní 2007. Tóku lögin gildi frá og með 1. janúar 2008. Með lögunum var ákveðið að leggja niður eigin starfsheiti og lögbundið starfssvið sjávarútvegsráðuneytisins og landbúnaðarráðuneytisins, en þess í stað stofna nýtt ráðuneyti sjávarútvegs- og landbúnaðarmála undir heitinu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið. Aðsetur þess er að Skúlagötu 4, þar sem sjávarútvegsráðuneytið var til húsa á 6. hæð. Hið nýja ráðuneyti hefur einnig fengið til umráða 5. hæð hússins þar sem afgreiðsla ráðuneytisins er.
Ráðuneytisstjóri sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins var skipaður Sigurgeir Þorgeirsson og tók hann til starfa 1. janúar 2008. Fram til þess tíma hafði hann verið framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands undanfarin tólf ár. Sigurgeir lauk doktorsprófi frá Edinborgarháskóla árið 1981 og BSc prófi frá sama skóla 1976. Hann var aðstoðarmaður landbúnaðarráðherra frá 1991-1995 og áður var hann sérfræðingur hjá Rannsóknastofnun landbúnaðarins um fimmtán ára skeið, þar af fyrstu fimm árin í hlutastarfi með námi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra er Steingrímur J. Sigfússon.
