Ráðuneytið

Verkefnasjóður sjávarútvegsins

VERKEFNASJÓÐUR SJÁVARÚTVEGSINS

Hlutverk

Almenn deild veitir styrki til verk­efna sem falla undir verkefnasvið og eru á vegum Hafrannsóknastofnunarinnar, fiskveiði­eftirlits Fiskistofu og Matvælastofnunar, Veiðimálastofnunar, Matís ohf. sem og Rannsóknasjóðs um aukið verðmæti sjávarfangs (AVS-rannsóknasjóðs). Í tillögum sínum til ráðherra um úthlutun úr sjóðnum skal stjórnin líta til þess hvort rannsóknaverkefni falli að langtímaáætlun Hafrannsóknastofnunarinnar, Veiðimálastofnunar, Matís ohf. eða þeim sérstöku verkefnum sem Fiskistofu  og Matvælastofnun eru falin vegna eftirlits með fiskveiðum. Leggi stjórn Verkefnasjóðs sjávarútvegsins til að fé verði veitt til Rannsóknasjóðs til að auka verðmæti sjávarfangs skal því varið til rannsókna- eða þróunarverkefna einstaklinga, rannsóknahópa, háskóla, rannsóknastofnana og fyrirtækja samkvæmt áherslum AVS-rannsóknasjóðs á grundvelli faglegs mats stjórnar þess sjóðs á gæðum verkefnanna, færni þeirra einstaklinga sem stunda þau og aðstöðu þeirra til að sinna verkefninu.

Deild um sjávarrannsóknir á samkeppnissviði veitir styrki til verkefna einstaklinga, fyrirtækja, rannsókna-, þróunar og háskólastofnana og er úthlutað til verkefna sem efla rannsóknar- og þróunarverkefni á lífríki sjávar umhverfis Íslands og efla til lengri tíma litið sjálfbæra nýtingu auðlinda hafsins og samkeppnishæfni sjávarútvegs. Auglýst er eftir umsóknum um styrki í fjölmiðlum. Styrkir eru veittir til eins árs í senn. Heimilt er að veita framhaldsstyrk á grundvelli nýrrar umsóknar, enda standist verkefnið kröfur um framvindu og gæði.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra skipar þrjá menn í stjórn hvorrar deildar. Stjórn deildar um sjávarrannsóknir á samkeppnissviði skipa Lárus Ægir Guðmundsson sem er formaður, Dóra Hlín Gísladóttir og Pétur Bjarnason. Stjórn almennrar deildar skipa Arndís Ármann Steinþórsdóttir sem er formaður, Jóhann Guðmundsson og Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir.

Auglýsing um styrki til rannsókna- og þróunarverkefna 2012

Leiðbeiningar um frágang umsókna til deildar Verkefnasjóðs um sjávarrannsóknir á samkeppnissviði

Stjórn samkeppnisdeildar Verkefnasjóðs sjávarútvegsins

Reglur um stjórn Verkefnasjóðs sjávarútvegsins og úthlutun úr sjóðnum

Veittir styrkir úr deild Verkefnasjóð um sjávarrannsóknir á samkeppnissviði 2008

Veittir styrkir úr deild Verkefnasjóð um sjávarrannsóknir á samkeppnissviði 2009

Veittir styrkir úr deild Verkefnasjóð um sjávarrannsóknir á samkeppnissviði 2010

Veittir styrkir úr deild Verkefnasjóð um sjávarrannsóknir á samkeppnissviði 2011

Veittir styrkir úr deild Verkefnasjóð um sjávarrannsóknir á samkeppnissviði 2012


Þetta vefsvæði byggir á Eplica