Ráðuneytið
Verkefnasjóður sjávarútvegsins
VERKEFNASJÓÐUR SJÁVARÚTVEGSINS
Hlutverk
Verkefnasjóður sjávarútvegsins starfar samkvæmt lögum nr. 37 27. maí 1992, um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla með síðari breytingum. Sjóðurinn er í vörslu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins og skal verja fé úr honum til rannsókna og nýsköpunar á sviði sjávarútvegs og til eftirlits með fiskveiðum.
Verkefnasjóður sjávarútvegsins starfar í tveimur deildum, almennri deild og deild um sjávarrannsóknir á samkeppnissviði. Sjávarútvegsráðherra skipar þrjá menn í stjórn hvorrar deildar.
Almenn deild veitir styrki til verkefna sem falla undir verkefnasvið og eru á vegum Hafrannsóknastofnunarinnar, fiskveiðieftirlits Fiskistofu, Veiðimálastofnunar, Matíss ohf og Rannsóknasjóðs um aukið verðmæti sjávarfangs (AVS-rannsóknasjóðs).
Deild um sjávarrannsóknir á samkeppnissviði veitir styrki til verkefna einstaklinga, fyrirtækja, rannsókna-, þróunar og háskólastofnana og er úthlutað til verkefna sem efla rannsóknar- og þróunarverkefni á lífríki sjávar umhverfis Íslands og efla til lengri tíma litið sjálfbæra nýtingu auðlinda hafsins og samkeppnishæfni sjávarútvegs. Auglýst er eftir umsóknum um styrki í fjölmiðlum. Styrkir eru veittir til eins árs í senn. Heimilt er að veita framhaldsstyrk á grundvelli nýrrar umsóknar, enda standist verkefnið kröfur um framvindu og gæði.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra skipar þrjá menn í stjórn hvorrar deildar. Stjórn deildar um sjávarrannsóknir á samkeppnissviði skipa Lárus Ægir Guðmundsson sem er formaður stjórnar, Dóra Hlín Gísladóttir og Pétur Bjarnason. Stjórn almennrar deildar skipa Arndís Ármann Steinþórsdóttir sem er formaður, Steinar Ingi Matthíasson og aðstoðarmaður ráðherra.
Stjórn samkeppnisdeildar Verkefnasjóðs sjávarútvegsins
Reglur um stjórn Verkefnasjóðs sjávarútvegsins og úthlutun úr sjóðnum
Leiðbeiningar um frágang umsókna til deildar Verkefnasjóðs um sjávarrannsóknir á samkeppnissviði
Auglýsing um styrki til rannsókna- og þróunarverkefna 2008
Auglýsing um styrki til rannsókna- og þróunarverkefna 2009
Veittir styrkir úr deild Verkefnasjóð um sjávarrannsóknir á samkeppnissviði 2007
Veittir styrkir úr deild Verkefnasjóð um sjávarrannsóknir á samkeppnissviði 2008
Veittir styrkir úr deild Verkefnasjóð um sjávarrannsóknir á samkeppnissviði 2009
