Hlutverk

Hlutverk

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti fer með mál, er varða:

A. Sjávarútveg, þar á meðal:

  1. Rannsókn, verndun og nýtingu fiskistofna og annarra lifandi auðlinda hafsins og hafsbotnsins, sem og stjórnun svæða þar sem þær eru nýtanlegar.
  2. Eftirlit með verndun og nýtingu fiskistofna og annarra lifandi auðlinda hafsins og hafsbotnsins, sem og stjórnun svæða þar sem þær eru nýtanlegar.
  3. Rannsóknir og eftirlit með framleiðslu og innflutningi sjávarafurða.
  4. Eldi nytjastofna sjávar.
  5. Stuðning við rannsóknir, þróun og nýsköpun í sjávarútvegi.
  6. Verðlagsstofu skiptaverðs og verðlagsráð sjávarútvegsins.
  7. Þróunarsjóð sjávarútvegsins.

B. Landbúnað, þar á meðal:

  1. Rannsóknir og eftirlit í landbúnaði.
  2. Nytjaskógrækt á bújörðum og landshlutaverkefni í skógrækt.
  3. Jarðir í eigu og umsjá ríkisins, þ.m.t. kirkjujarðir.
  4. Landnotkun í þágu landbúnaðar og önnur jarða- og ábúðarmál.
  5. Áveitur og framræslu.
  6. Framleiðslu- og markaðsmál í landbúnaði, inn- og útflutning landbúnaðarafurða.
  7. Inn- og útflutning dýra og plantna og erfðaefnis þeirra, varðveislu erfðaauðlinda í landbúnaði og yrkisrétt.
  8. Aðbúnað búfjár og heilbrigði dýra, varnir gegn dýrasjúkdómum, gæði og heilnæmi aðfanga og landbúnaðarafurða.
  9. Veiði í ám og vötnum, eldi vatnadýra og önnur veiðimál.
  10. Lán og stuðning við nýsköpun og starfsemi á sviði landbúnaðar.
  11. Hagrannsóknir og áætlunargerð í landbúnaði.

C. Matvæli, matvælaeftirlit og matvælarannsóknir.

  1. Heilbrigðiseftirlit með matvælum og fóðri.
  2. Heilbrigði dýra og varnir gegn dýrasjúkdómum.
  3. Löggilding dýralækna og störf þeirra.
  4. Heilbrigði plantna og varnir gegn plöntusjúkdómum.
  5. Eftirlit með sáðvöru og áburði.
  6. Stuðningur við rannsóknir, þróun og nýsköpun í matvælaiðnaði.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica