Jafnréttisáætlun SLR

Jafnréttisáætlun sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins

Markmið
Markmiðið með jafnréttisáætlun sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins er að jafn réttur kynjanna ríki innan ráðuneytisins, jöfn staða og virðing. Þannig njóti bæði kynin jafnra tækifæra og kjara fyrir sambærileg störf. Lögð er áhersla á góða líðan starfsmanna á vinnustað þar sem samræming fjölskyldulífs og atvinnu er í heiðri höfð og á að hver starfsmaður verði metinn á eigin forsendum og geti notið sín í starfi. Þannig verði tryggt að mannauður ráðuneytisins nýtist sem best. Jafnréttisáætlun þessi tekur til allra starfa í ráðuneytinu.

Jafnréttisfulltrúi fjallar um og hefur eftirlit með stöðu jafnréttismála á málasviði ráðuneytisins. Framkvæmd ákvæða jafnréttisáætlunar þessarar er á ábyrgð yfirstjórnar ráðuneytisins.

Launajafnrétti
Markmið
Að konum og körlum séu greidd jöfn laun fyrir sambærileg störf og kynin njóti sömu kjara, sbr. 14. gr. laga nr. 96/2000. Gildir þetta einnig um aðrar greiðslur en grunnlaun, s.s. bifreiðastyrki, greiðslur fyrir yfirvinnu, þóknanir og önnur hlunnindi.
Aðgerðir
Ef leiddar eru líkur að því að launamismunur sé til staðar vegna kynferðis, skal yfirstjórn sýna fram á að aðrar ástæður en kynferði hafi legið til grundvallar launaákvörðun. Við ákvarðanir um launafyrirkomulag skal gæta samræmis milli kynja. Árlega skal gera úttekt á launum og hlunnindum starfsmanna m.t.t. kynferðis.
Ábyrgð
Yfirstjórn, starfsmannahald.

Líðan starfsmanna
Markmið
Áhersla er lögð á góða líðan og góðan starfsanda í ráðuneytinu. Allir starfsmenn eiga rétt á því að komið sé fram við þá af virðingu og að þeir sæti ekki kynferðislegri áreitni, einelti eða öðru ofbeldi. Þá skulu starfsmenn ekki baktala hver annan heldur koma fram af hreinskilni og koma skilaboðum um ágalla og þörf á úrbótum á framfæri við rétta aðila.
Aðgerðir
Verði starfsmaður fyrir einhvers konar misrétti getur hann leitað til yfirstjórnar sem ber að leiðbeina honum í slíkum málum og veita nauðsynlega aðstoð. Starfsmenn skulu hvattir til að leita til yfirmanna sinna með hvaðeina sem veldur þeim vanlíðan á vinnustað og skulu yfirmenn þá leitast við að bæta úr því, eftir því sem við verður komið. Í ráðuneytinu skal liggja fyrir aðgerðaáætlun sem kveður á um hvernig bregðast skuli við ef upp koma mál sem varða einelti og kynferðislegt ofbeldi. Vinnuaðstæður allar skulu taka mið af þörfum beggja kynja.
Ábyrgð
Yfirstjórn.

Samræming fjölskyldu- og atvinnulífs
Markmið
Að öllum starfsmönnum sé kleift að samræma starfsskyldur sínar og skyldur gagnvart fjölskyldu.
Aðgerðir
Foreldrum ungra barna skal kynnt sú afstaða ráðuneytisins að gengið sé út frá því að þeir taki það fæðingarorlof sem þeir eiga rétt á og að jafnt mæður sem feður séu heima hjá veikum börnum. Bjóða skal starfsfólki hlutastörf, styttingu vinnutíma, sveigjanlegan vinnutíma eða aðra hagræðingu, eftir því sem við verður komið. Möguleikar á hlutastörfum skulu standa konum og körlum jafnt til boða. Starfsmönnum skal einnig, eftir föngum, auðveldað að koma aftur til starfa að loknu fæðingar- eða foreldraorlofi eða eftir fjarveru vegna óviðráðanlegra brýnna fjölskylduaðstæðna. Upplýsa skal karla um lögvarinn rétt sinn til fæðingar- og foreldraorlofs.
Ábyrgð
Yfirstjórn.

Starfsþjálfun og endurmenntun
Markmið
Að bæði kynin njóti sömu tækifæra til endurmenntunar og starfsþjálfunar og til að sækja námskeið sem leiða til aukinnar hæfni í starfi eða til undirbúnings fyrir önnur störf.
Aðgerðir
Öllum starfsmönnum skal gefinn kostur á að sækja fræðslu, námskeið, ráðstefnur o.þ.h. til að auka hæfni sína í starfi. Haldið skal utan um þá fræðslu sem starfsmenn sækja svo yfirsýn yfir slík námsleyfi sé fyrir hendi. Yfirmenn skulu sækja fræðslu um jafnréttismál. Þeir skulu og kynna starfsmönnum rétt sinn til símenntunar skv. þessari jafnréttisáætlun. Árlega skal fara fram greining á sí- og endurmenntun starfsmanna eftir kynferði.
Ábyrgð
Yfirstjórn, jafnréttisfulltrúi.

Auglýsingar, starfsráðningar og tilfærslur í störfum
Markmið
Að auglýsingar um laus störf í ráðuneytinu höfði jafnt til kvenna og karla og að í þeim sé gætt jafnræðis og jafnrar virðingar kynjanna. Við ráðningar í störf sé kynjaskipting innan ráðuneytisins ævinlega höfð í huga.
Aðgerðir
Auglýsingar á vegum ráðuneytisins skulu að jafnaði vera kynhlutlausar. Starfsauglýsingar skulu höfða bæði til kvenna og karla og gæta skal þess að hafa bæði kynin í huga við gerð þeirra. Bæði kynin skulu hvött til að sækja um og í auglýsingunum skal koma fram að jafnréttissjónarmið séu höfð í huga við ráðningu.

Við ráðningar í störf í ráðuneytingu skal þess gætt að sá umsækjandi sem metinn er hæfastur til þess að gegna starfi sé ráðinn, án tillits til kynferðis. Séu karl og kona talin jafnhæf til starfs skal að jafnaði ráða það kynið sem á hallar í sambærilegum störfum í ráðuneytinu.

Við úthlutun verkefna, þegar tilfærsla verður í störfum og þegar tækifæri eru gefin til frekari ábyrgðar og til framgangs í störfum innan ráðuneytisins, skal þess gætt að einstaklingum sé ekki mismunað vegna kynferðis.
Ábyrgð
Yfirstjórn

Þátttaka í nefndum og ráðum
Markmið
Að ná fram sem jöfnustu hlutfalli karla og kvenna í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum hins opinbera. Þannig verði hlutfall kynja aldrei meira en 60:40 öðru kyninu í hag. Því jafnari sem hlutföll karla og kvenna eru þar sem verið er að móta nýja stefnu, því meiri líkur eru á því að ákvarðanir sem teknar eru endurspegli hagsmuni beggja kynja.
Aðgerðir
Ætíð þegar óskað er tilnefninga í nefndir, ráð og stjórnir skal minnt á að í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum opinberra aðila skulu sitja sem næst jafnmargar konur og karlar, sbr. 20. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, nr. 96/2000. Jafnframt skal þess gætt að óska eftir tilnefningum af báðum kynjum. Þegar skipað er í nefndir, ráð og stjórnir án tilnefninga verði þegar í stað tekin upp sú regla að kynjahlutfall sé sem jafnast innan hvers hóps. Hafa skal í huga við skipun í einstakar nefndir, ráð og stjórnir að þar sé annað kynið í meirihluta til að rétta af ójafnvægi innan annarra nefnda. Árlega skal greina skiptingu kynja í nefndir og ráð á vegum ráðuneytisins.
Ábyrgð
Yfirstjórn, jafnréttisfulltrúi.

Samþætting jafnréttissjónarmiða
Markmið
Að flétta sjónarhorn kynferðis inn í stefnumótun ráðuneytisins, eftir því við á, þannig að horft sé á mál fyrst og fremst út frá því hvernig þau snerta konur annars vegar og karla hinsvegar. Þannig hafi allir sem koma að stefnumótun á ákvarðanatöku að hafa þekkingu á jafnréttismálum. Til lengri tíma litið er markmiðið það að sjónarhorn kynferðis verði sjálfsagður hlutur allrar ákvarðanatöku og verði alltaf lagt til grundvallar.
Aðgerðir
Markviss fræðsla til stjórnenda og starfsmanna ráðuneytisins um samþættingu og jafnréttismál sem og fræðsla um samræmingu starfs og fjölskylduábyrgðar sem verði virkur þáttur í starfi ráðuneytisins.

Skulu allir starfsmenn hafa lokið námskeiði í jafnréttismálum fyrir endurskoðun jafnréttisáætlunar ríkisstjórnarinnar 2006. Tryggt verði nægt fjármagn í þessu skyni.
Ábyrgð
Yfirstjórn, jafnréttisfulltrúi.

Tölfræðiupplýsingar
Markmið
Að upplýsingar um kynjaskiptingu séu ávallt tiltækar þar sem það á við og mögulegt er og þær birtar þegar ráðuneytið vinnur og birtir tölfræðiupplýsingar.
Aðgerðir
Greina skal á milli kynja við gagnaöflun og annan undirbúning ákvarðana, úrvinnslu gagna og birtingu upplýsinga nema sérstakar ástæður, svo sem persónuverndar­hagsmunir, mæli gegn því. Taka skal saman árlegt yfirlit um kynjaskiptingu styrkþega, þátttakenda í námskeiðum Starfsfræðslunefndar fiskvinnslunnar o.fl. eftir því sem við á.
Ábyrgð
Jafnréttisfulltrúi

Jafnréttisfulltrúi
Markmið
Markmiðið með skipun jafnréttisfulltrúa er að ráðuneytið hafi á að skipa fulltrúa sem fjallar um og hefur eftirlit með jafnréttisstarfi á málasviði ráðuneytisins og þeirra stofnana sem undir ráðuneytið heyra og tryggja virkt eftirlit með því að í starfi ráðuneytisins sé farið eftir jafnréttisáætlun þess. Ennfremur að starfsmenn og stjórnendur séu reglulega minntir á að taka tillit til ólíkra sjónarmiða og aðstæðna kvenna og karla.
Aðgerðir
Jafnréttisfullrúi skal taka saman árlegt yfirlit um stöðu jafnréttismála innan ráðuneytisins og á málasviði þess. Yfirlitið skal kynnt starfsmönnum og stjórnendum ráðuneytisins. Hann skal einnig senda Jafnréttisstofu árlega greinargerð um jafnréttisstarf ráðuneytisins, sbr. 11. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Hann skal sækja og veita sérfræðiráðgjöf er varðar samþættingu jafnréttis- og kynjasjónarmiða og sækja aukna þekkingu, m.a. með þátttöku í verkefnum, ráðstefnum og námskeiðum. Jafnréttisfulltrúi skal taka þátt í samstarfi jafnréttisfulltrúa annarra ráðuneyta og sækja samstarfsfundi þeirra. Ennfremur skal hann hafa tengsl við forstöðumenn eða jafnréttisfulltrúa stofnana sem undir ráðuneytið heyra. Jafnréttisfulltrúi tekur saman árlegt yfirlit um stöðu jafnréttismála innan ráðuneytisins og á málasviði þess.
Ábyrgð
Jafnréttisfulltrúi

Kynning og endurskoðun
Jafnréttisáætlun sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins er sett skv. 2. mgr. 13. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, nr. 96/2000. Hún skal endurskoðuð á þriggja ára fresti. Jafnréttisáætlunin skal kynnt starfsmönnum sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins og nýjum starfsmönnum við ráðningu.
Ábyrgð
Jafnréttisfulltrúi.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 1. janúar 2008

Einar K. Guðfinnsson           Sigurgeir Þorgeirsson

(sign)                                                                    (sign)




Þetta vefsvæði byggir á Eplica