Fréttir

Auknar heimildir til loðnuveiða

27.1.2012

Í júní 2011 lagði Hafrannsóknastofnunin til að bráðabirgðaaflamark í loðnu yrði 732 þúsund tonn fyrir haust- og vetrarvertíðina 2011/2012. Stofnunin lagði ennfremur til að upphafsaflamark yrði miðað við 366 þúsund eða helming þess magns. Í ljósi þessa gaf sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra út ríflega 181 þúsund tonna aflamark til íslenskra skipa en hlutur erlendra skipa við upphafsúthlutun var hins vegar reiknaður út frá bráðabirgðaaflamarki eða 732 þúsund tonnum. Hér var um að ræða upphafsheimildir til loðnuveiða og voru þær mun fyrr á ferðinni en undanfarnar vertíðir.

Hafrannsóknastofnunin hefur nú lokið mælingum á stærð veiðistofns loðnu og útreikningar á stærð hans, að frádregnum 400 þúsund tonnum sem skilið er eftir til hrygningar skv. aflareglu, og í kjölfar þeirra hefur stofnunin lagt til við sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að heildaraflamark vertíðarinnar verði 765 þúsund tonn. Er það 33 þúsund tonnum umfram þær spár sem lágu til grundvallar bráðabirgðaaflamarki. Aukningin til íslenskra skipa nemur alls 372 þúsund tonnum og því verður heildaraflamark íslenskra skipa tæplega 554 þúsund tonn. Þessi aukning er meiri en heildarúthlutn til íslenskra skipa á öllu árinu 2011. Á síðari stigum vertíðarinnar kann þetta heildaraflamark að aukast meira takist erlendum skipum ekki að fullnýta allar veiðiheimildir sínar.Óhætt er að segj að hér er um að ræða afar jákvæðar fréttir fyrir íslenskan sjávarútveg og þjóðarbú þar sem áætlað er að útflutningsverðmæti vertíðarinnar geti numið a.m.k. 27 - 28 milljörðum króna. Þessi verðmætaaukning mun hafa jákvæð áhrif á hagvaxtarhorfur fyrir árið 2012.

Sjávarútvegsráðherra undirritaði í gærkvöldi reglugerð þar sem endanlegt útgefið aflamark er ákveðið í samræmi við ráðgjöf Hafrannsóknarstofnunar.


Fréttir


Þetta vefsvæði byggir á Eplica