Viðsnúningur í aflameðferð makríls og veruleg þyngdaraukning í íslensku lögsögunni
Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur látið vinna skýrslu um makrílveiðar við Ísland. Samkvæmt henni hefur orðið mikill viðsnúningur til hins betra í meðferð makrílafla íslenskra skipa þar sem meirihluti aflans fer nú í frystingu. Það er í samræmi við sameiginlegt markmið ráðuneytisins og LÍÚ frá því í júnímánuði síðastliðnum og vonir eru bundnar við enn stærri hluti aflans fari framvegis til manneldis.
Þá hefur markaðssetning makrílafla gengið vel og er íslenskur makríll nú seldur til 27 landa víðsvegar um heim. Starfshópur ráðherra tók einnig fyrir göngur makríls, fæðunám hans í íslenskri lögsögu, dreifingu og veiðiaðferðir. Fram kemur í skýrslunni að sameiginlegar vísindarannsóknir Íslands, Noregs og Færeyja sýna að um ein milljón tonna af makríl eða 23% af heildarstofninum gekk í íslenska lögsögu 2010 og dvaldi í henni yfir fæðuöflunartímann. Vegin þyngdaraukning á þeim tíma er talin nema 59%. Meðfylgjandi mynd sýnir aukningu í makrílgöngu í íslensku lögsögunni milli áranna 2009 og 2010.
Vinnuhópur ráðherra var skipaður starfsmönnum sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis, Fiskistofu, MATÍS, Hafrannsóknarstofnunarinnar og LÍÚ. Formaður hópsins var Jóhann Guðmundsson skrifstofustjóri í ráðuneytinu.
Skýrsluna í heild má nálgast hér.

