Fréttatilkynningar

Breyting á reglugerð um birtingu niðurstaðna vegna eftirlits með áburði.

13.1.2012

Nr. 1/2012

  Breyting á reglugerð um birtingu niðurstaðna vegna eftirlits með áburði.

 

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur í dag gefið út reglugerð sem heimilar Matvælastofnun með ótvíræðum hætti að birta einstakar niðurstöður greininga vegna eftirlits með áburði sem er á markaði hérlendis. Heimildin nær til tilvika sem svo eru skilgreind í reglugerðinni:

a.      „Þegar niðurstöður úr efna- og örverugreiningum leiða í ljós að áburður er ekki í samræmi við vörulýsingu eða ákvæði laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru eða reglugerða settra á grundvelli þeirra.

b.      Þegar niðurstöður leiða til þess að Matvælastofnun gefur fyrirmæli um afmengun, takmarkar framleiðslu eða markaðssetningu, leggur hald á eða fer fram á förgun á áburði.“

Þá segir ennfremur í reglugerðinni:

„Birting niðurstaðna skal fara fram eins fljótt og unnt er á heimasíðu stofnunarinnar. Jafnframt er Matvælastofnun með sama hætti heimilt að birta almennar upplýsingar um aðgerðir hennar eða áburðarfyrirtækja þegar áburður uppfyllir ekki kröfur um öryggi vörunnar.“

Loks er kveðið á um að stjórnsýslukæra aðila máls til ráðherra fresti ekki birtingu Matvælastofnunar.

Reglugerðina má sjá hér.

 


Eftir árum


Þetta vefsvæði byggir á Eplica