Fréttatengt
Íslensk þýðing á spurningum og svörum um landbúnað í tengslum við aðildarumsókn Íslands að ESB.
Í samræmi við ákvörðun Jóns Bjarnasonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hafa verið þýddar yfir á íslensku spurningar Evrópusambandsins og svör ráðuneytisins við þeim um landbúnað í tengslum við aðildarumsókn Íslands að ESB. Er þýðinguna að finna á heimasíðu ráðuneytisins og eru þeir sem vilja fylgjast með þessari umræðu hvattir til að kynna sér málið.
Verið er að þýða þær spurningar og svör er varða sjávarútveginn og stefnt er að því að því verki verði lokið innan fárra vikna.
Þýðing um landbúnað og þróun dreifbýlis. (906 Kb)

