Fréttatengt

Rússneski sendiherrann Hr. Victor I. Tatarintsev kvaddur

15.1.2010

Jón Bjarnason og Viktor I Tatarintsev sendiherra Rússlands

Rússneski sendiherrann Hr. Victor I. Tatarintsev er nú á förum frá Íslandi og tekur við öðrum verkefnum í heimalandi sínu sem m.a. felast í því að sinna málefnum Íslands.

Í kveðjuhófi sendiherranns þakkaði Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Victor I. Tatarintsev fyrir fórnfúst starf við að efla og auka samskipti Íslands og Rússlands.  Alla tíð sína sem sendiherra á Íslandi hefur Victor I. Tatarintsev verið ötull við að greiða götur Íslendinga og íslenskra stjórnvalda í samskiptum við Rússland.  Margt væri  hægt að nefna, en sem nýlegt dæmi  er hægt að upplýsa að rússnesk og íslensk yfirvöld munu um helgina  undirrita samninga um heilbrigðisskoðun og útflutningsleyfi  á íslenskum landbúnaðarvörum til Rússlands.  Rússlandsmarkaður er vaxandi markaður og mikilvægur vegna útflutnings á íslensku kjöti og kjötafurðum.  Victor I. Tatarintsev hefur ásamt sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, Matvælastofnun og landssamtökum sláturleyfishafa lagt mikla vinnu í  að opna þennan markað og veitt ómetanlega hjálp við að fá tilheyrandi leyfi frá til þess bærum yfirvöldum í Rússlandi.  

Jón þakkaði Victori fyrir störf sín hér fyrir sína hönd og ráðuneytisins og sagði að samstarfið við hann hafi verið sérlega ánægjulegt og hans yrði sárt saknað.




Eftir árum


Þetta vefsvæði byggir á Eplica