03
Haustfundur HES, MAST, UST og ráðuneyta

Haustfundur Heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga með Matvælastofnun, Umhverfisstofnun og ráðuneytum umhverfis, sjávarútvegs- og landbúnaðar var haldinn á Hótel Loftleiðum 14. og 15. október.


Lesa meira >> 


03
Húsfyllir á haustfundi LK í Þingborg

Á annað hundrað manns sótti fyrsta haustfund Landssambands kúabænda sem haldinn var í Þingborg í Flóa sl. mánudagskvöld. Þórólfur Sveinsson formaður LK flutti framsögu þar sem ítarlega var fjallað um verðlags- og kjaramál sem og sölumál og framtíðarhorfur. Einar K. Guðfinnsson ávarpaði fundinn, fór yfir stöðu mála og svaraði fyrirspurnum.


Lesa meira >> 


Mjólk
Mjólkurverði breytt

Verðlagsnefnd búvara hefur tekið sameiginlega ákvörðun um að heildsöluverð á mjólk og mjólkurafurðum sem nefndin verðleggur, hækki 1. nóvember n.k. um 10,39%. Við þessa breytingu má gera ráð fyrir að einn lítri af nýmjólk hækki um 10 kr.


Lesa meira >> 


Fjöreggið
Fjöreggið og matvæladagur MNÍ

Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra fjallaði um að fjöregg íslensku þjóðarinnar í setningarávarpi sínu á Matvæladegi Matvæla og næringarfræðingafélags Íslands sem haldinn var í gær undir yfirskriftinni Íslenskar matarhefðir og héraðskrásir. Venju samkvæmt voru verðlaunin Fjöreggið afhent við þetta tækifæri en það er veitt fyrir lofsvert framtak á matvæla- og næringarsviði. Að þessu sinni hreppti Ávaxtabíllinn Fjöregg MNÍ


Lesa meira >> 

Skjaldamerki Íslands Sjávarútvegs- og Landbúnaðarráðuneytið
Veffang www.sjavarutvegsraduneyti.is - Netfang: postur@slr.stjr.is
Sími 545 8300 - Bréfasími 552 1160
Ábyrgðarmaður: Sigurgeir Þorgeirsson - sigurgeir.thorgeirsson@slr.stjr.is