Skólaskip
Skólaskip
Skólaskipið Dröfn RE 35
Frá árinu 1998 hefur ms. Dröfn RE 35 verið nýtt í allt að 60 daga á ári sem skólaskip en verkefninu var hrundið af stað af sjávarútvegsráðuneytinu í tilefni af ári hafsins. Um er að ræða almenna fræðslu fyrir börn í 9. og 10 bekk grunnskóla. Þeim býðst að fara í kynnisferð með skipinu og kynnast mörgum hliðum á þessari atvinnugrein, sjávarútvegi.
Þegar unglingarnir koma um borð tekur skipstjóri á móti þeim og fer yfir björgunarbúnað skipsins og öryggismál. Því næst fara þau niður á millidekk þar sem stýrimaður sýnir þeim líkan af ýmsum veiðarfærum (trolli, línu o.þ.h.) og útskýrir hvernig þau virka.
Þessu næst hlýða þau á fyrirlestur sérfræðings frá Hafrannsóknastofnuninni sem fræðir þau um hafrannsóknir, lífríki hafsins, strauma og vistkerfi auk þess að sýna þeim stutta kvikmynd um sjávarútveg.
Þá fara krakkarnir upp í brú þar sem skipstjóri tekur aftur á móti þeim og sýnir þeim tölvubúnað skipsins og notkun sjókorta og siglingatækja.
Og þá er siglt af stað – farið á sjóinn. Tekin er upp krabbagildra í upphafi ferðar ef aðstæður leyfa og afraksturinn skoðaður á útleiðinni úti á dekki með sérfræðingi Hafrannsóknastofnunarinnar. Þá er sett út troll og togað í nokkrar mínútur og er spennan í hámarki þegar híft er, að fá að sjá hvað kemur í trollið.
Krakkarnir skoða aflann með sérfræðingi Hafrannsóknastofnunarinnar og gera svo að honum með aðstoð áhafnarinnar.
Hver ferð tekur um 2,5-3 klst. og komast u.þ.b. 15 nemendur með í hverja ferð. Farnar eru tvær ferðir á dag meðan verkefnið er í gangi.
Nemendurnir, kennarar þeirra, starfsmenn ráðuneytisins og Hafrannsóknastofnunarinnar eru tryggðir almennri áhafnartryggingu meðan á ferðunum stendur.
Kynnisferðir með skólaskipinu eru í mjög mörgum tilfellum eina tækifærið sem æsku landsins býðst til að kynnast sjávarútvegi og fara til sjós. Verkefnið hefur verið fjármagnað af ráðuneytinu auk þess sem sérstakt framlag hefur stundum fengist frá Alþingi.
Ráðuneytið hefur aldrei getað annað eftirspurn eftir ferðunum sem verða sífellt vinsælli með hverju árinu sem líður en í upphafi var verkefnið hugsað sem tilraunaverkefni til tveggja ára. Um um 900-1.100 börn hafa komist í ferð með skipinu á ári þegar best hefur látið. Skólarnir hafa í æ ríkari mæli undirbúið nemendur undir ferðirnar og látið þau vinna verkefni fyrir og eftir þær. Alls hafa yfir 10.000 nemendur víðs vegar af landinu farið í ferðir skipsins. Óhætt er að segja að um sé að ræða metnaðarfulla dagskrá þar sem nemendur kynnast mörgum hliðum á þessari mikilvægu atvinnugrein.
Myndir frá ferðum skólaskipsins má nálgast hér.
Ráðuneytið hefur falið Hafrannsóknastofnuninni að annast skipulagningu ferðanna. Stofnunin hefur, í samvinnu við Námsgagnastofnun, sett upp vef sem nefnist Fjaran og hafið en þar er að finna fjölbreytilegan fróðleik og verkefni um lífverur í hafinu og fjörunni sem auðvelt er að nýta samhliða ferðum skipsins. Á vefnum er mikið myndefni; ljósmyndir, teikningar og myndbandsefni.
Rannsóknaskipið Dröfn er byggt á Seyðisfirði árið 1981 og hét áður Otto Wathne.
Lengd skipsins er 26 m, breidd: 6,6 m, dýpt: 3,45 m. Skipaskrárnúmer er 1574 og kallmerki TFOW.
Dröfn RE 35 var í upphafi verkefnisins í eigu Hafrannsóknastofnunarinnar en hún var seld til einkaaðila árið 2004. Þar sem skipið hentar einkar vel til þessa verkefnis, samdi sjávarútvegsráðuneytið við nýjan eiganda þess um að halda ferðunum áfram með óbreyttu sniði. Útgerðaraðili skipsins er Sigurbjörg Jónsdóttir ehf.

Rs. Dröfn RE-35 (myndin er birt með leyfi höfundar).
Nánari upplýsingar um skipið má finna hér: http://www.sax.is/?gluggi=skip&id=1574
